Skilmálar

 

Upplýsingar um seljanda

Seljandi er Be Brave slf. kt. 711018-0340. VSK: 133005. Berghólum 20, 800 Selfossi. Sími: 8631480. Netfang: 509@bebrave.is 

Verð á vöru og sendingakostnaður

Be Brave áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara. Öll verð í vefverslun eru gefin upp með virðisaukaskatti. Be Brave áskilur sér rétt til að hætta við pantanir ef verð vörunnar er rangt skráð í vefverslun eða ekki til á lager.

 Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Be Brave ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Be Brave til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Greiðslumöguleikar
Hægt er að greiða fyrir vörur í vefversluninni með eftirfarandi hætti:

  • Millifærsla. Þegar gengið er frá pöntun er hægt að velja það að millifæra. Millifærsla þarf að berast innan við 24 tíma frá pöntun, að öðrum kosti fellur pöntunin niður. 
    Reikningsnr: 0308-26-10509 Kt: 711018-0340
  • Með VISA eða MASTERCARD greiðslukortum í gegnum örugga greiðslusíðu Rapyd greiðslumiðlun. Tekið er við kreditkortum og debetkortum.

            Myndaniðurstaða fyrir mastercard  maestro logo 2019  Myndaniðurstaða fyrir visa logo 2019

                Myndaniðurstaða fyrir visa electron logo 2019            Myndaniðurstaða fyrir mastercard  maestro logo 2019

Að skila og skipta vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn framvísun sölureiknings sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Vöru fæst eingöngu skilað sé hún ónotuð og í upprunalegum óskemmdum umbúðum. Við skil á vöru er miðað við verð samkvæmt greiðslukvittun og getur kaupandi skipt vörunni fyrir aðra vöru eða fengið inneignarnótu. Vörur fást ekki endurgreiddar. 

Jól 2023. Skipta má jólagjöfum til 15. janúar 2024 (22 dagar frá aðfangadegi).  

 

Gölluð vara
Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður persónuupplýsinga
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. Að undanskildum samstarfsaðilum í greiðsluþjónustu, póstþjónustu og ef lögregla eða skattayfirvöld óska eftir upplýsingum. Við leggjum áherslu á öryggi persónuupplýsinga viðskiptavina okkar og förum með slíkar upplýsingar í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga. Við söfnum eingöngu upplýsingum um viðskiptavini okkar til þess að geta veitt þá þjónustu sem beðið er um. Bókhaldsgögn okkar eru vistuð í samræmi við öryggiskröfur persónuverndarlaganna og laga um færslu bókhalds og varðveislu þess. Geymsla og vistun slíkra upplýsinga miðast við lög þess efnis.

Lög og varnarþing                                                                               

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Suðurlands.

 


                      Spurningar varðandi skilmála sendist á 509@bebrave.is